Góðar fréttir!
Af mér er bara allt það besta að frétta. Í sumar fór ég í augnskoðun sem kom vel út (fyrir utan smá víkjandi galla) og svo fór ég til læknisins áðan í hjartaskoðun og fékk svona ljómandi góðar niðurstöður (Örnu sys létti þvílíkt!), þannig að núna er fjölskyldan farin að leyfa sér alvarlega að hugsa um hvort að við eigum að para skvísuna í vor ;) Það er mjög svo mikill áhugi fyrir því á heimilinu, sumir eru búnir að plana hin ýmsustu smáatriði varðandi það þó svo að endanleg ákvörðun hafi nú ekki verið tekin ;)
En svo er nú heldur betur farið að styttast í sýningu ;) Úan okkar er skráð í unghundaflokk og við systurnar reynum eftir bestu getu að þjálfa hvora aðra. Og svo rétt í þessu var pabbi að setja saman lítið saumaborð fyrir mömmu, en við systurnar erum að hugsa um að stela því af henni, það er svo fullkomið til æfinga ;) (hægt að sjá mynd hér fyrir neðan)
Svo er Úa mjög upptekin í uppeldi þessa dagana. Í hvert skipti sem Frekna eða Kara koma í heimsókn er sko passað upp á að þær hvorki, labbi, skríði, gelti, urri né andi án þess að leggjast af og til fyrir ofurhetjunni Úu, sem veit að hún er prinsessan á heimilinu og lætur aðra vita af því ;)
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment