Jæja, á morgun er stóri dagurinn. María ætlar að koma með Úu til okkar, og núna verður það til frambúðar. Loksins er komið að því. Við Elmar fáum litla "systur" svona eiginlega í afmælisgjöf (Elmar er vanur!).
Úan okkar kom til okkar á föstudagskvöldið og var yfir nóttina. Allt gekk vel, svo framarlega sem hún hafði höndina á mömmu hjá sér. Ef mamma leyfði sér það að snúa sér, fékk hún krafs í bakið. En það er náttúrulega bara eðlilegt, Úa er vön að sofa í klessu með öllum systkinahópnum. Svo gekk laugardagurinn bara vel, ég leyfi mér samt að halda að hún hafi saknað mín á meðan ég var í vinnunni, miðað við fagnaðarlætin sem ég fékk þegar að ég kom heim. En Úu virðist líða vel hér, er alltaf kát og sefur vel, og er meira að segja byrjuð að borða vel, en við höfðum fyrst svolitlar áhyggjur af því hve lítið hún át. En kannski er hún bara svona matgrönn, eins og hinir í fjölskyldunni (hóst, hóst).
En núna er fjölskyldan að farast úr spenningi, við vonum að allt gangi vel.
Kv. Arna Bergrún.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment