Hæhæ, við fjölskyldan fórum núna í kvöld í okkar þriðju heimsókn til hvolpanna. Enn er ekki alveg ákveðið hvora dúlluna við fáum en það fer að koma í ljós. Það er alltaf jafn yndislegt að koma að sjá litlu krílin og knúsa þau og horfa á þau leika sér. Ekki er síðra að sjá alla fullorðnu Cavalier-hundana sem María er með, en þeir eru hvorum öðrum blíðari og keppast um að fá sem mest klapp og knús frá okkur. Gaman að vita hvað bíður okkar næstu árin. Við getum varla beðið, tilhlökkunin er svo mikil.
En svona til að slá á mestu spennuna höfum við verið að versla eitt og annað fyrir litlu prinsessuna, en við erum nú þegar komin með bæli (sjá myndaalbúm), leikgrind, matardalla, eitt dót og ól. Svo erum við smám saman að safna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Arna Bergrún.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment