Hæhæ, Úa hér.
Undanfanir dagar hafa verið með heldur óhefðbundnu sniði. Á miðvikudaginn fór mamma til Englands á einhverja námsgagnasýningu og alveg steingleymdi að bjóða mér með. Þess vegna hefur dálítið mikill tími farið í að stara á útidyrahurðina til að gá hvort hún væri nú ekki að fara að koma heim En hún kemur víst heim í kvöld, þá verður sko fagnað.
En það bætti nú reyndar upp að það voru vakningadagar í skólanum hjá Örnu sys þannig að fimmtudagurinn var stuttur og föstudagurinn alveg frí, þá vorum við systurnar bara í algjörum rólegheitum, mjög gott.
En gærdagurinn var samt alveg frábær. Nú var ekkert lóðarívesen á mér þannig að ég var alveg til í að sýna mig svolítið. Ég fór inn í Víðidal með pabba og Örnu og ég fékk fyrstu einkunn, og very good! komst reyndar ekki í úrslit en þetta er mikil framför frá seinustu sýningu.
Eftir sýninguna vorum við systurnar frekar þreyttar, önnur svaf og hin lék sér í tölvunni.
En síðan byrjaði Arna eitthvað að tala um að þetta gengi ekki og að við yrðum nú að fara upp í hól og hlaupa svolítið í langa taumnum. En ég var hinsvegar ekki alveg á sömu skoðun. Arna byrjaði að hlaupa og reyna að leika við mig, en ég var nú ennþá bara hálf syfjuð og lagðist í snjóinn og sagði bara hingað og ekki lengra. Og svo þegar að ég fékk tækifæri til þá labbaði ég bara heim með Örnu í eftirdragi og flúði til pabba! Sýndi það mjög augljóslega að mig langaði ekki í göngutúr (ábyggilega aldrei gerst fyrr!).
En um leið og við vorum komnar heim hringdi dyrabjallan. Og það var sko mikið æði! Guðrún Lilja Parísarmamma var komin og bauð mér og Örnu með í lausagöngu upp í Kaldárssel. Þá var ég sko alveg til í að hlaupa og leika, fyrst að ég fékk að leika við París sæta!
Eftir að ég kom heim var ég alveg til í að leggja mig svolítið eftir frábæran dag, og svaf fram á kvöld!
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment