Saturday, February 6, 2010

31. október

Síðastliðið sumar fórum við með Úu til dýralæknis í sprautur og þá var okkur sagt að koma aftur með hana í haust, við tókum ekki eftir til hvers við ættum að koma enda upptekin af hvolpinum ( við vorum samt 3 með hana og engin tók eftir), en þar sem við viljum gera allt rétt þá drifum við okkur með hana á mánudaginn og ég held helst að dýralæknirinn hafi verið hálf hissa á komu okkar en Úa fékk nú samt ormahreinsilyf og mikið hrós, svo mikið að við tókum fyrir eyrun á henni svo hún ofmetnaðist nú ekki. Hún á eftir að missa eina mjólkurtönn og líklegast þarf að taka hana en við segjum að þetta með að missa ekki allar tennurnar sé í genunum Arna, (17 ára með 5 daga gamalt bílpróf) er ekki enn búin að missa eina barnatönnina og það sem okkur finnst merkilegast af öllu að þetta er sama tönnin hjá systrunum sem ekki er farin!!!!

Annars er allt gott að frétta af Úunni okkar hún er þessa dagana að breytast úr hvolpi í ungling en mér sýnist það ætla að ganga jafn-átaklaust fyrir sig og hjá hinum unglingunum á heimilinu, ég reikna með að það sé ekki vinsælt að mæta með hana í gönguna á sunnudaginn eða hvað? Gott væri ef einhver fræddi okkur um það.
Kveðjur, AB.

No comments:

Post a Comment