Saturday, February 6, 2010

28. júní

Úa er nú búin að vera hjá okkur síðan á mánudag, það hefur allt gengið mjög vel hún bræðir alla sem koma inn á heimilið. Við höldum að við séum með snilling í höndunum hún sefur eins og engill og vaknar ekki fyrr en við vöknum og gerir allt sem gera þarf úti í grasi það hefur bara orðið eitt slys og hún valdi rétt gólf til þess, sem sagt snillingur!!!! Þar sem hún sýnir svona mikla námsgetu og stríðir greinilega ekki við mótþróaþrjóskuröskun erum við búin að kenna henni nafnið sitt og það er alveg öruggt að hún þekkir það hún kemur líka alltaf þegar kallað er á hana og hún er að læra að setjast hún hlýðir því svona 90%. Garðar er svo að kenna henni pallasmíði þannig að ef einhver er í vandræðum hafið þá samband við pallagerðakonuna Úu. Hún er búin að fá kveðju frá systur sinni, Uglu, og hefur sýnt mikinn áhuga á að hitta hana sem fyrst. Að lokum smá gort ( hitt var ekki gort bara staðreyndir) hún er farin að fara út í beisli vill reyndar fara sínar eigin leiðir ennþá en matmóðirin er nú ekki naut fyrir ekki neitt og stjórnar eins og hún getur það er svona beggja blands hvernig það gengur. Og eitt enn, get greinilega ekki hætt, getur verið að Úa sé lamb hún er á beit allan daginn!

Fyrir hönd Úu, hún lærir ekki á tölvuna fyrr en eftir sumarfrí, Anna Björg.




Úa er komin !!!!!!!!!!!!

No comments:

Post a Comment