Saturday, February 6, 2010

Ný síða!!!

Jæja, þá erum við komin með nýja síðu.
Ég er búin að setja inn allar gömlu færslurnar frá hinni síðunni, en tókst því miður ekki að setja inn myndirnar sem tilheyrðu þeim.
Mbk,
Arna Bergrún og Ljúflings Úa.

17. janúar 2010

Ég, mamma og Elmar fórum núna í kvöld í fyrstu heimsóknina til Bliku okkar. En hún fæddist þann 31. desemer 2009 (á afmælisdaginn hans pabba), hjá henni Maríu (Ljúflingsræktun).

Það er því beðið á þessum bæ með eftirvæntingu eftir að marsmánuður komi, því að þá verður gullmolinn orðinn 10 vikna ;o)


Knús á alla frá Úu verðandi stóru sys!

-Arna Bergrún-

28. ágúst 2009

Jæja, núna fer vetrarrútínan öll að komast í gang. Öll fjölskyldan byrjuð að vinna eða byrjuð í skólanum. Og ég byrjuð að fá almennilegan morgunsvefn - eða þó ekki, mér finnst alltaf einhver vera heima hjá mér. Það er svona að búa á stóru heimili.


Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðan síðast. Ég er alltaf að fá skemmtilega hunda í heimsókn, París, Natan, Freknu, Bono og svo Tinna litla frænda. Svo er ég búin að fara nokkrum sinnum upp í sumarbústað og svo líka í sveitina til Þóru og Einars. Svo skellti ég mér að sjálfsögðu í nokkrar Cavaliergöngur í sumar. Og ég er auðvitað búin að vera í fullu starfi við að halda röð og reglu á heimilinu og nánasta nágrenni.

Síðan fór ég síðustu helgi á Afmælissýningu HRFÍ. Þar stóð ég mig með prýði og fékk bláan borða og very good báða dagana og flotta dóma með. Svo fór ég í gær aftur upp í reiðhöll á afmælishátíðina og hitti sko heldur betur mikið af flottum hundum.

Knús og kossar á ykkur öll,
Úa

12. júní 2009

Ekki góðar fréttir...


Við fengum því miður ekki góðar fréttir í dag, en Úan okkar er víst ekki með hvolpa.

En við reynum að líta á björtu hliðarnar og vona að það gangi bara betur næst.Við hlökkum bara til að sýna hana í ágúst en það er stefnan.

7. apríl 2009

Páskafrí!!!

Jæja, alltaf sama letin í henni systur minni að blogga
En af mér er bara allt það besta að frétta. Fór á marssýninguna og fékk bláan borða og frábæra dóma
Svo er ég alltaf að fá frábæra gesti, Natan sæti labrador hefur komið og svo auðvitað Parísinn minn og svo kemur Frekna frænka alltaf reglulega, þannig að það er nóg að gera hjá mér við að sinna gestunum.
Svo er núna fjölskyldan öll að fara að komast í páskafrí og ég nýt þess í botn! Ég hef margt fyrir stafni en passa mig þó að þiggja nú nægt dekur og kúr inn á milli.

6.febrúar 2009

Góðar fréttir!

Af mér er bara allt það besta að frétta. Í sumar fór ég í augnskoðun sem kom vel út (fyrir utan smá víkjandi galla) og svo fór ég til læknisins áðan í hjartaskoðun og fékk svona ljómandi góðar niðurstöður (Örnu sys létti þvílíkt!), þannig að núna er fjölskyldan farin að leyfa sér alvarlega að hugsa um hvort að við eigum að para skvísuna í vor ;) Það er mjög svo mikill áhugi fyrir því á heimilinu, sumir eru búnir að plana hin ýmsustu smáatriði varðandi það þó svo að endanleg ákvörðun hafi nú ekki verið tekin ;)

En svo er nú heldur betur farið að styttast í sýningu ;) Úan okkar er skráð í unghundaflokk og við systurnar reynum eftir bestu getu að þjálfa hvora aðra. Og svo rétt í þessu var pabbi að setja saman lítið saumaborð fyrir mömmu, en við systurnar erum að hugsa um að stela því af henni, það er svo fullkomið til æfinga ;) (hægt að sjá mynd hér fyrir neðan)

Svo er Úa mjög upptekin í uppeldi þessa dagana. Í hvert skipti sem Frekna eða Kara koma í heimsókn er sko passað upp á að þær hvorki, labbi, skríði, gelti, urri né andi án þess að leggjast af og til fyrir ofurhetjunni Úu, sem veit að hún er prinsessan á heimilinu og lætur aðra vita af því ;)

23. janúar 2009

Hæhæ kæru vinir...


...það er búið að vera alveg nóg að gera hjá mér! Ég er bæði búin að fara uppí Kaldárssel með Natani sæta, labradorhvolpaskotti og svo er ég búin að fara upp í Heiðmörk með Köru frænku (gordon setter) og Stormi (ungversk vizsla) en Arna sys er ekki nógu dugleg að muna að hafa myndavélina með í för. smiley Svo er ég líka búin að fá að hitta Freknu frænku og bara hafa það kósý með fjölskyldunni minni.

Svo á að sýna mig á HRFÍ-sýningunni í unghundaflokki, við systurnar hlökkum mikið til og svo ætlar Gerður mák að sýna Köru frænku þannig að það verður svaka stuð....

Svo er ég bara búin að vera að brillera í að láta alla á heimilinu dekra við mig að vanda, ekki amalegt að eiga stóra fjölskyldu til að láta þjóna sér!

Knús á alla,
Úa mús

10. janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár og....

takk fyrir gamla árið. Ég ætla aðeins að stelast til að skrifa hér þótt Arna sjái um þessa síðu, Frekna frænka kom nefnilega í heimsókn í dag og það er alltaf gaman að fá hana og ekki verra að henni fylgir ágætis eigandi.

24. desember 2008

Elsku vinir..
Gleðileg jól!

17. desember 2008

Jæja, nú er ekki nema vika í jólin þó ég haldi nú að flestir heimilismeðlimir vildu nú að það væri pínu lengra í þau. Mamma er búin að standa sig vel í bakstrinum en jólagjafirnar hjá fjölskyldunni eru ekki komnar svo langt á leið.
Svo er það pakkadagatalið Snæfinnur. Allir drógu í nóvember annan fjölskyldumeðlim til þess að kaupa gjafir fyrir og voru þær svo settar í pakkadagatalið. Úan okkar á svo alla sunnudaga og aðfangadag. Þvílíkir hæfileikar sem hundurinn hefur við að opna pakka. Hún bara opnar þá nánast hjálparlaust á nó tæm!
Þó hún geri nú reyndar heiðarlega tilraun til þess að stela pökkunum sem hinir eigi að fá líka.
Já og svo er Úan búin að eignast einka aðdáanda. (veit ekki hvort að Parísinn hennar sé ánægður með það). Hann Polli papillon nágranni okkar var mjög duglegur að koma í heimsókn þegar að Úa var að lóða. Gjarnan þegar að við komum heim beið hann við hliðið og vonaðist til þess að fá að hitta skvísuna. Hann meira að segja labbaði meðfram húsinu okkar og bankaði á gluggann til að vita hvort Úan væri heima. Greinilega sönn ást! En ekki voru þau svo heppin að fá að hittast. ;(
Kv. Arna Bergrún og Úa mús.

15. nóvember 2008

..Nú hefur verið algjört bloggleysi hér á bæ en ætlunin er nú að reyna að bæta úr því. ;) Það hefur nú aðeins fjölgað á heimilinu en Pálmar stóri bró og Gerður mák eru flutt til okkar. Sem er náttúrulega algjört æði þar sem sem ég fæ ennþá meiri athygli! Svo er svo kósý að það er yfirleitt alltaf einhver heima hjá mér. ;)

Svo er bara fullt að gera hjá mér við að fá vini í heimsókn sem er snilld! Kara hennar Gerðar kíkir oft á mig og svo hef ég fengið að hitta Freknu frænku aftur, farið í göngur með Natani hvolpaskotinu hennar Guðnýjar og svo kemur auðvitað draumaprinsinn minn París reglulega ;)

Svo er nú orðið allt of stutt í prófatörnina hjá skólafólkinu á heimilinu... ohh... allt of mikið að gera hjá þeim, en það leiðir þó af sér hið frábæra jólafrí ;) Og svo erum við systurnar að vinna í því að sannfæra mömmu um að við séum ekkert orðnar of stórar fyrir Snæfinn (pakkadagatal) en mér fannst svo ótrúlega gaman að rífa utan af pökkunum í fyrra ;)

Jæja, læt þetta duga í bili og knús og kossar til ykkar allra, reyni að láta líða styttra á milli blogga,
Úa mús. ;)

30. október 2008

Það er svo mikið að gera hjá Örnu að hún hefur ekki gefið sér tíma til að skrifa á síðuna og því ætla ég að setja hér niður nokkur orð. Úa tók þátt í sýningunni í haust og fékk fína dóma um byggingarlag, feld og lunderni en blessunin setti upp kryppu þegar dómarinn var að meta hana og það geðjaðist dómaranum ekki. Ég verð að gagnrýna Það að Arna var fyrst í röðinni og fékk ekki að stilla Úu upp áður en hún var skoðuð en allir sem á eftir komu höfðu nægan tíma til þess. Deginum fyrir sýninguna hafði Úa komist í tópaspakka og var með smá niðurgang um morguninn og tveimur klukkutímum fyrir sýninguna fékk Arna þá frétt að amma hennar hefði látist um morguninn, ekkert smáálag á systurnar.
Jæja nóg um þetta. Það er alltaf jafngaman að kenna Úu nýjar listir hún er mjög fljót að læra og við höldum að hún skilji of mikið í mannamáli og verðum því stundum að nota dulmál t.d. segist enginn lengur vera að fara út að labba eða ganga nema ætlunin sé að hafa hundinn með því hún hleypur fram og leggst niður til að láta setja sig í taum. En oftast kemur það sér vel hvað hún skilur mikið hún fer strax í grindina sína þegar hún er beðin um að passa húsið og hoppar út í bíl ef henni er sagt að gera það.
Okkur langar til að prófa að hafa hvolpa og erum byrjuð að undirbúa okkur, Arna er duglegust að lesa sér til og er búin að safna í upplýsingamöppu öllu sem hún finnur um hvolpa. Við erum búin að fara með Úu í augnskoðun, þar kom í ljós að hún er með víkjandi augnsjúkdóm sem gerir henni ekkert, við verðum bara að passa að rakkinn sem hún parast með sé ekki með þennan sjúkdóm. Næst er að fá hjartavottorð það gerum við í febrúar eða mars og svo er að finna rakka. Okkur langar svolítið í þrílitann rakka.
Þetta er fyrir löngu orðið allt of langt en ég verð samt að segja frá Freknu frænku sem kom í fyrsta skipti í heimsókn í gær, Frekna er border collie og heitir Frekna af augljósri ástæðu.
Stopp í bili.

17. september 2008

Seinasti sunnudagur var sko algjört æði! Ég er eiginlega ennþá að jafna mig á honum.
Skvísurnar á heimilinu, þ.e. Arna sys, mamma og ég byrjuðum morguninn á því að kíkja á smáhundadagana inn í Garðheimum. Þar var verslað á mig nýtt beisli og taumur og svo regngalli. (Gallinn sem ég fékk frá París er orðinn of lítill þannig að Arna keypti bara annan eins, nema stærri :) )

Eftir Garðheima drifum við mæðgur okkur í Cavaliergönguna. Það var bara fín mæting miðað við hvað það leit út fyrir að vera slæmt veður. En það hékk þurrt mest allan tímann. :) Þar hitti ég bæði Ugga bró og Uglu sys. Og auðvitað fullt af fleiri Cav-krúttum.

Ljúflings Úa
Ljúflings Úa
Mikið að gera
Almennt SpjallPosted by Anna Björg 30 Oct, 2008 13:03:51
Það er svo mikið að gera hjá Örnu að hún hefur ekki gefið sér tíma til að skrifa á síðuna og því ætla ég að setja hér niður nokkur orð. Úa tók þátt í sýningunni í haust og fékk fína dóma um byggingarlag, feld og lunderni en blessunin setti upp kryppu þegar dómarinn var að meta hana og það geðjaðist dómaranum ekki. Ég verð að gagnrýna Það að Arna var fyrst í röðinni og fékk ekki að stilla Úu upp áður en hún var skoðuð en allir sem á eftir komu höfðu nægan tíma til þess. Deginum fyrir sýninguna hafði Úa komist í tópaspakka og var með smá niðurgang um morguninn og tveimur klukkutímum fyrir sýninguna fékk Arna þá frétt að amma hennar hefði látist um morguninn, ekkert smáálag á systurnar.
Jæja nóg um þetta. Það er alltaf jafngaman að kenna Úu nýjar listir hún er mjög fljót að læra og við höldum að hún skilji of mikið í mannamáli og verðum því stundum að nota dulmál t.d. segist enginn lengur vera að fara út að labba eða ganga nema ætlunin sé að hafa hundinn með því hún hleypur fram og leggst niður til að láta setja sig í taum. En oftast kemur það sér vel hvað hún skilur mikið hún fer strax í grindina sína þegar hún er beðin um að passa húsið og hoppar út í bíl ef henni er sagt að gera það.
Okkur langar til að prófa að hafa hvolpa og erum byrjuð að undirbúa okkur, Arna er duglegust að lesa sér til og er búin að safna í upplýsingamöppu öllu sem hún finnur um hvolpa. Við erum búin að fara með Úu í augnskoðun, þar kom í ljós að hún er með víkjandi augnsjúkdóm sem gerir henni ekkert, við verðum bara að passa að rakkinn sem hún parast með sé ekki með þennan sjúkdóm. Næst er að fá hjartavottorð það gerum við í febrúar eða mars og svo er að finna rakka. Okkur langar svolítið í þrílitann rakka.
Þetta er fyrir löngu orðið allt of langt en ég verð samt að segja frá Freknu frænku sem kom í fyrsta skipti í heimsókn í gær, Frekna er border collie og heitir Frekna af augljósri ástæðu.
Stopp í bili.
Blog Image

* Comments(1)http://uablogg.annabjorg.de/#post19
* Share

Hundahúsið opið
Almennt SpjallPosted by Anna Björg 20 Oct, 2008 15:12:23
Blog Image

* Comments(1)http://uablogg.annabjorg.de/#post18
* Share

Hundahús
Almennt SpjallPosted by Anna Björg 19 Oct, 2008 18:10:41
Það er búið að vera svo mikið að gera undanfarið að ekki hefur verið tími til að blogga bætum úr því fljótlega, ætla bara að skella inn einni mynd af hundahúsi sem við vorum að panta handa Úu, þetta eru hús sem eru sett saman eins og legókubbar, engin skrúfa, enginn nagli, bæði hægt að fá úr krossvið og mdf. Hægt að mála og skreyta eins og hver vill.Blog Image

* Comments(2)http://uablogg.annabjorg.de/#post17
* Share

Æðislegur sunnudagur!
Almennt SpjallPosted by Arna Bergrún 17 Sep, 2008 21:11:09
Seinasti sunnudagur var sko algjört æði! Ég er eiginlega ennþá að jafna mig á honum.
Skvísurnar á heimilinu, þ.e. Arna sys, mamma og ég byrjuðum morguninn á því að kíkja á smáhundadagana inn í Garðheimum. Þar var verslað á mig nýtt beisli og taumur og svo regngalli. (Gallinn sem ég fékk frá París er orðinn of lítill þannig að Arna keypti bara annan eins, nema stærri :) )

Eftir Garðheima drifum við mæðgur okkur í Cavaliergönguna. Það var bara fín mæting miðað við hvað það leit út fyrir að vera slæmt veður. En það hékk þurrt mest allan tímann. :) Þar hitti ég bæði Ugga bró og Uglu sys. Og auðvitað fullt af fleiri Cav-krúttum.

Svo vorum við svo heppnar að mamma París bauð okkur í heitt te og brauð eftir gönguna. Æðislegt! Þar fékk ég að leika svolítið við París, Halmet, Mirru, Joy og Nölu. Takk fyrir okkur!

Svo eftir það komu Pálmar og Gerður í mat til okkar. Það var reyndar svona skyndimatur þar sem Gerður þurfti að fara með Köru í sýningar þjálfun og við Arna þurftum líka að fara. Ég var nú reyndar orðin það þreytt þá að ég ætlaði varla að halda út. Ég var eignilega mest hissa á því að Arna neitaði að halda á mér í þjálfuninni, þótt ég biði fallega!



Ég var hálf feginn að komast heim að sofa. En þetta var samt snilldar dagur. Takk fyrir daginn allir!

Knús,
Úa mús.

3. september 2008

Hæhæ...

... ætli við systur verðum nú ekki aðeins að láta í okkur heyra. Það er aldrei góðs viti þegar að mamma er farin að kvarta. Það er nú hún sem gefur okkur að borða. Ætli það sé ekki best að halda henni góðri.

Núna er öll fjölskyldan byrjuð í skólunum sínum. Þannig að núna er ég loksins byrjuð að fá að kúra almennilega á morgnanna.

Kara "frænka" er búin að vera dugleg að kíkja í heimsókn. Pálmar bró og Gerður eru búin að vera að passa hana og komu nokkrum sinnum með hana. Það er svo merkilegt að maður næstum horfir á hana stækka í hvert skipti. Nú er hún orðin stærri en Úa. En það sést greinilega að Úan okkar ræður ennþá.

Svo er búið að skrá Úu á haustsýniguna. Við systur erum sko farnar að hlakka til. Við ætlum að reyna eftir bestu getu að vera duglegar að mæta í sýningarþjálfanir.

Í gær var svo æðislegt veður að Guðný vinkona dró okkur út í göngutúr. Það var sko ekkert smá gaman, við stoppuðum á Súfistanum og fengum okkur kakó (sumir fengu þó ekkert nema rjóman ofan á, en voru samt MJÖG sáttir). Á þessu rölti okkar um bæinn hittu við átta hunda og heyrðum í nokkrum til viðbótar. Það er greinilegt að Hafnfirðingar eru duglegir að nota góða veðrið þegar að það kemur.

Jæja, knús á ykkur öll,

Arna og Úa.

13. ágúst 2008

Hæhæ, í gær fór ég í allsherjar snyrtingu í Dýrabæ. Kom heim aldeilis ilmandi og fín. En Arna sys og pabbi voru sko ekki lengi að skemma það því að þau fóru með mig í dag upp í Kaldársel þar sem að ég hljóp beint útí Kaldá og svo í moldina og sandinn. En ég skemmti mér ótrúlega vel, ég elska að geta hlaupið laus!

Knús á alla,

Úa mús.

13. ágúst 2008

Gerður Halla og fjölskylda urðu fyrir því óláni að missa hundinn sinn, hana Kotru, í slysi fyrr í sumar, en nú eru þau búin að fá sér annan hund og hún heitir Kara, hún er gordon setter.
Í gær kom svo Kara í sína fyrstu heimsókn til Úu og það var sko gaman.

26. júlí 2008

Í kvöld þegar að ég fór út að labba með pabba hitti ég aðal töffara Hafnarfjarðar. Hann París minn! Það var svo langt síðan að við höfðum hist að ég bauð honum að sjálfsögðu í kvöldhlaup í garðinum mínum. Vá hvað það var gaman!
Góða nótt! Zzz

22. júlí 2008

Hæhæ.

Á laugardaginn fór ég í sveitina til Þóru og Einars með fjölskyldunni. Við kíktum svo líka í bústaðinn til Óla frænda og Sibbu. Ég nýt mín svo vel í Grímsnesinu! Þetta var æðislegur dagur. Takk fyrir mig!

Svo fór ég til dýralæknis í gær í sprautuna mína. Ég stóð mig eins og algjör hetja og læknarnir voru svo ánægðir með mig!

Verð svo að segja frá einu krúttlegu.
Í gær var Arna systir í tölvunni og ég var greinilega ekki alveg sammála henni um hvaða diskur ætti að vera í drifinu. Þannig að ég labbaði ósköp kurteisislega að tölvunni og opnaði diskadrifið!



Knús og kossar,
Úa mús.

18. júlí 2008

Hæhæ, ætla bara aðeins að monta mig....

...á morgun er ég að fara með fjölskyldunni minni uppí sveit til Þóru og Einars (fósturforeldra minna). Ég hreinlega elska að vera þar! Hlakka svo til.

Annars er bara allt gott að frétta af mér, ég er svaka glöð að vera komin með mömmu heim aftur, en hún skrapp í nokkra daga til Þóru í sveitina án mín.


Knús til ykkar allra,
Úa mús.

10. júlí 2008

Vegna ástands Úu vildum við ekki fara með hana í grillgönguna í gær en okkur langaði samt mikið. Síðan hennar Úu er enn í hönnun og afar fáir vita af henni ennþá en þetta stendur allt til bóta.

3. júlí 2008

Við höfum ákveðið að opna nýja síðu fyrir Úu, ekki af því að við værum óánægð með Dýralandssíðuna heldur af því að húsmóðirin var að kaupa sér svæði á netinu og því sjálfsagt að nota það sem til er. Annars er allt gott að frétta af Úunni, hún er reyndar á lóðaríi og er því svolítið döpur og svolítið þreytt en vill nú samt taka þátt í öllu sem henni er boðið upp á.

26. júní

Afmæli.

Tvö af eldri systkinum Úu eiga afmæli í dag, Úa færði þeim afmælisgjöf klukkan hálfsjö í morgun, hún gat ekki beðið lengur, hún var svo spennt að sjá viðbrögðin við gjöfinni.

25. júní

Í dag er liðið eitt ár frá því að Ljúflings-María kom með gleðigjafann hana Ljúflings-Úu til okkar. Á þessu ári erum við búin að læra mikið um hunda og erum eiginlega hálfhissa hversu vel allt hefur gengið hjá okkur. Úa er reyndar einstaklega góður hundur, hún er svo kát og blíð, frökk og óhrædd og heldur að öllum hljóti að líka vel við hana, hún heilsar öllum, reynir að fá fólk og hunda til að leika við sig. Hundaheimurinn er líka alveg nýr heimur fyrir okkur það hefur komið okkur mikið á óvart hversu mörgum hundum og hundaeigendum við höfum kynnst á þessu eina ári, svo eru allir svo tilbúnir að gefa okkur góð ráð eða bara spjalla. Besti vinur Úu er París, hann hefur hjálpað til við uppeldið og Guðrún Lilja mamma hans hefur einnig gefið okkur fullt af góðum ráðum.

María, takk fyrir að hafa treyst okkur fyrir Úu!

En að allt öðru, við fjölskyldan erum búin að vera í löngu fríi í útlöndum, áður en við fengum okkur hund vorum við búin að ganga frá því að við hefðum örugga pössun fyrir Úu og þar var hún þennan tíma, það er greinilegt að henni leið vel hjá Þóru og Einari, hún fagnaði okkur reyndar mikið þegar við komum til að sækja hana en varð svo hálfhrædd þegar hún sá að við vorum að taka hana en hún var nú samt fljót að jafna sig. Arna kom ekki með að sækja Úu en þegar þær systur hittust voru þvílíkir fagnaðarfundir að virkja hefði mátt táraflóðið! Úa fékk að fara nokkrum sinnum í sveitina með þeim Þóru og Einari og þar lærði hún að leika sér úti í bandi, hún fann hreiður með ungum í, henni fannst sjálfsagt að sleikja þá aðeins og svo voru frændur hennar þeir Atli og Daníel duglegir að leika við hana. Þóra og Einar, takk kærlega fyrir pössunina og Þóra við munum herma þetta upp á þig að vera ljósmóðir ef og þegar við förum í hvolpastúss!

6. júní

Hæhæ,

nú er ég komin í tveggja vikna pössun hjá Þóru frænku og Einari frænda og ætla sko að njóta þess að láta þau dekra við mig bæði í sveitinni þeirra og bænum.

Svo fer fjölskyldan mín til Englands á eftir.

Þess vegna verðum við ekkert í hundanetheiminum næsta hálfan mánuðinn og ætla ég þess vegna að senda ykkur öllum risa knús og kossa sem verða að duga á meðan.

Hafiði það gott,

Úa mús.

28. maí

Hæhæ, seinasta helgi var sko algjört æði!

Á föstudaginn seinasta komu Þóra frænka og Einar að sækja mig og keyrðu með mig upp í sumarbústað til þeirra. Það var svo gaman! Ég var alveg með allt á hreinu þó að ég hafi nú ekki farið mjög oft þangað og var heldur betur snögg að gera mig heimakomna.

Fjölskyldan mín var mjög ánægð með hve vel allt gekk enda eru nú ekki nema 9 dagar þar til þau fara til útlanda og ég verð hjá Þóru og Einari á meðan! Vá hvað það verður nú gaman að fá að skottast upp í sumarbústað með þeim á meðan....

Knús til allra,

Úa mús.

19. maí

Hæhæ, það var sko heldur betur mikið fjör hjá mér á miðvikudaginn síðasta. Ég dró Örnu Bergrúnu sys og bæði pabba og mömmu með mér í Cavalier-gönguna í Elliðaárdalnum. Það var æðislegt! Veðrið var bara snilld og mér líst vel á ef að göngunefndin er búin að panta svona veður í allar göngurnar.

Og svo allir þessir hundar..... algjört æði. En því miður gleymdist myndavélin heima en það eru mikið af skemmtilegum myndum á síðunni hans París ( www.123.is/paris ).

Svo á laugardaginn komu frænkurnar mínar sætu, Yrja og Raja í heimsókn. Þá var sko gaman. Ég og Yrja lékum og lékum en hún Raja var nú full þroskuð fyrir svona hamagang og lét sér nægja að fylgjast bara með.

Og svo í gær var líka æðislegt því þá kom París sjálfur, ofurtöffarinn í heimsókn.

og við vorum sko dugleg að leika okkur. Takk fyrir leikinn París!

Knús á alla,

Úa mús.

13. maí

Hæhæ,

nú er ritarinn minn ekki búin að vera að standa sig enda er hún búin að vera í prófum. En hún kláraði í dag þannig að ég bíð eftir extra miklu dekri frá henni.

Kærar þakkir fyrir allar hlýju afmæliskveðjurnar. Ég átti æðislegan afmælisdag, ég fékk nýja sumar ól og taum í stíl og svo fékk ég líka lítið hús og mikið nammi! En dagurinn eftir afmælið mitt var nú eiginlega betri því þá kom pabbi heim eftir viku ferðalag!

Nú er farið að styttast í að fjölskyldan mín fari út og að ég fari í sveitasæluna til Þóru og Einars! Ég er farin að hlakka svo til!

Ég er byrjuð að læra að skríða undir hluti þegar að mér er sagt það og svo þegar að sagt er bang við mig þá velti ég mér á hliðina, alveg stein dauð! -eða svona næstum- , og svo er ég rétt að byrja að læra að dansa og orðin nokkuð góð í að gefa five.

Það er nú meira hvað þessi fjölskylda mín nennir að þræla mér út! (en ég græði mikið af aukabitum á meðan!)

Vonandi sjáumst við sem flest í cavaliergöngunni annað kvöld,

kossar og knús til allra,

Úa mús.

17. apríl

Úa er 1 árs í dag!

29. mars

Hæhæ, Úa hér, ég vona að þið hafið haft það æðislega gott í páskafríinu ykkar og að þið hafið látið dekra extra mikið við ykkur
ég gerði það að minnsta kosti

Ég fór til dæmis í dagsferð uppí sumarbústað með fjölskyldunni, var klappstýra í körfubolta með Örnu Bergrúnu og Elmari og hafði það ótrúlega gott.

En þessi helgi verður sko heldur betur skemmtileg. Í gær byrjaði gamanið þegar að París og mamma hans komu í kvöldkaffi! Æði að fá svona ofurtöffara til að leika við.

Og svo á eftir á að senda mig í pössun til Þóru frænku og Einars og ég fæ að gista þar í nótt!

Þar sem fjölskyldan mín er að fara til Englands í sumar þá verð ég hjá þeim á meðan og ég verð nú aðeins að fá að venja mig við. En mér skilst nú samt að í sumar fái ég að fara með þeim í sveitina, þannig á ég verð í sumarfríi í mínu eigin ferðalagi. Æði!

Og svo á sunnudaginn gerist ég pössunarpía! Þar sem það er verið að ferma bróður Parísar þá fær hann að koma til mín! Vá hvað allir hérna eru byrjaðir að hlakka til

Kv. Úa

P.s. Okkur fjölskyldunni hefur alltaf verið sagt að þegar að maður byrjar að fara út að ganga með hvolpa á maður ekki að vera með svona útdraganlegan heldur bara stuttan taum uppá að sýna að hvolpurinn ráði ekki. Við hlýddum því alltaf en fyrir nokkrum mánuðum síðan byrjuðum við að venja hana á það að vera í löngum taum. Þá kom það vesen upp að hún virðist ekki treysta þessu langa bandi. Ef sagt er við hana ,, eigum við að koma út að labba" og henni er sýndur litli taumurinn hennar þá hleypur hún að útidyrunum. Ef það er sagt við hana ,,eigum við að fara í bílinn" þá þýtur hún að útidyrunum og ef það er sagt ,,eigum við að koma að horfa á sjónvarpið" þá hleypur hún niður í stofu. Ef það er sagt við Úu ,, eigum við að koma út að labba" og henni er sýndur langi taumurinn þá hleypur hún í felur. Hún reynir að fá hjálp allra heimilismanna nema þess sem heldur á taumnum, og hún felur sig á hinum ýmsustu stöðum. En þegar að maður er kominn með hana út þá er ekkert vesen, hún gengur eins og hershöfðingi um hverfið. Hún er svo mikið yndi. En það eru ófáar stundirnar sem maður hefur hlegið að henni þegar að hún fer í feluleik.

+ nú kann Úa að sitja, liggja, hoppa (bæði uppí nammi og yfir fætur), standa, bíða, sýna tennur og opna munnin þegar að mamma birtist með tannburstann og svo er hún búin að læra að heilsa.

Kv. Arna

8. mars

Hæhæ, það var sko æðislegt veður í dag! Og mig langaði svooo mikið uppí Kaldárssel með París. En mamma hans var víst ekki heima því miður, en mér tókst nú samt að draga stóru sys og pabba þangað!

Við fórum alla leið inn í Skólalund og ég fékk að skottast mikið taumlaus, enda er ég nú svo stillt og góð (ja, fyrir utan þegar að tvær rjúpur grátbáðu mig að koma í eltingaleik, ég varð auðvitað að hlaupa á eftir þeim......). En já, þetta var sem sagt heljarganga sem tók tæpa tvo tíma og vorum við svolítið þreytt eftirá.

Og svo var mér boðið í heimsókn til vinkonu mömmu, að hitta þrjú æðisleg börn. Ég sem er nú yfirleitt frekar róleg ákvað að það væri svolítið sniðugt að æsa þau vel upp, svo ég tók upp á því að taka bara sprettinn fram og til baka mér tókst sko vel að fá þau í leik.

Jæja, ég ætla að fara að hvíla mig vel eftir daginn,

kv. Úa þreytta

2. mars

Hæhæ, Úa hér.

Undanfanir dagar hafa verið með heldur óhefðbundnu sniði. Á miðvikudaginn fór mamma til Englands á einhverja námsgagnasýningu og alveg steingleymdi að bjóða mér með. Þess vegna hefur dálítið mikill tími farið í að stara á útidyrahurðina til að gá hvort hún væri nú ekki að fara að koma heim En hún kemur víst heim í kvöld, þá verður sko fagnað.

En það bætti nú reyndar upp að það voru vakningadagar í skólanum hjá Örnu sys þannig að fimmtudagurinn var stuttur og föstudagurinn alveg frí, þá vorum við systurnar bara í algjörum rólegheitum, mjög gott.

En gærdagurinn var samt alveg frábær. Nú var ekkert lóðarívesen á mér þannig að ég var alveg til í að sýna mig svolítið. Ég fór inn í Víðidal með pabba og Örnu og ég fékk fyrstu einkunn, og very good! komst reyndar ekki í úrslit en þetta er mikil framför frá seinustu sýningu.

Eftir sýninguna vorum við systurnar frekar þreyttar, önnur svaf og hin lék sér í tölvunni.

En síðan byrjaði Arna eitthvað að tala um að þetta gengi ekki og að við yrðum nú að fara upp í hól og hlaupa svolítið í langa taumnum. En ég var hinsvegar ekki alveg á sömu skoðun. Arna byrjaði að hlaupa og reyna að leika við mig, en ég var nú ennþá bara hálf syfjuð og lagðist í snjóinn og sagði bara hingað og ekki lengra. Og svo þegar að ég fékk tækifæri til þá labbaði ég bara heim með Örnu í eftirdragi og flúði til pabba! Sýndi það mjög augljóslega að mig langaði ekki í göngutúr (ábyggilega aldrei gerst fyrr!).

En um leið og við vorum komnar heim hringdi dyrabjallan. Og það var sko mikið æði! Guðrún Lilja Parísarmamma var komin og bauð mér og Örnu með í lausagöngu upp í Kaldárssel. Þá var ég sko alveg til í að hlaupa og leika, fyrst að ég fékk að leika við París sæta!

Eftir að ég kom heim var ég alveg til í að leggja mig svolítið eftir frábæran dag, og svaf fram á kvöld!

17. febrúar

Ljúflings-Úa er 10 mánaða í dag!!!!!!!!!!

31. janúar

Nú er fyrsta sýningin hennar Úu búin. Mér fannst mjög gaman að sýna hana og við stefnum á að skrá hana á marssýninguna. :) Úa okkar fékk aðra einkunn og að okkar mati góða umsögn. Við vorum alla vega voða stolt af skvísunni okkar, stóð sig vel miðað við að hún er að lóða... Og svo var ég hálfgerð taugahrúga, vissi varla hvernig þetta færi fram. En einhvern tímann er allt fyrst svo við verðum báðar öruggari með okkur á næstu sýningu. :)

Til hamingju kæru vinir með borðana ykkar og umsagnirnar, sem hafa pottþétt verið góðar, enda eruð þið öll svo falleg!

Kv. Arna og Úa, sýningarskvísur.

19. janúar

Jæja, nú er nú heldur betur búið að ver mikið að gerast. Jólin voru æðisleg hjá okkur. Öll fjölskyldan var í góðu jólafríi og Úan okkar var nú held ég orðin dálítið þreytt á okkur...alltaf eitthvað að gerast á hverjum morgni ekki bara hún ein að kúra... hún er ábyggilega fegin að við séum aftur farin í skólann. En Úu var nú sérstaklega boðið í jólaboð þegar að fjölskyldan fór í annað. Hún var ótrúlega ánægð með það, enda fór hún til "fósturforeldra" sinna, Þóru og Einars. :)

Um áramótin var nú voða lítið vesen á Úu. Hún hafði áhuga á áð skoða alla þessa fallegu flugelda og svo um tólf leytið passaði hún sig bara á að vera nógu nálægt stóra bróður. Ekki slæmt að hafa sinn eiginn lífvörð. En við vorum alveg búin að búast við því að hún yrði hræddari, en Úan okkar er lílega svona mikil hetja.

Svo er skvísan okkar líka búin að vera í sýningarþjálfun. Og að okkar mati gengur bara ágætlega. Alla vega miðað við kunnáttu sýnandans.... Eina sem er að er þegar að hún fer á sýningarborð í þjálfunninni þá verður hún alltaf smeik, en sama hvaða borð heima við skellum henni á þá er hún alltaf voða góð (og á það reyndar til að reyna að leggja sig svolítið :)

Búið er að ákveða að drífa alla fjölskylduna til Englands í sumar. Úa verður þá í tveggja vikna dekri hjá Þóru og Einari á meðan. Ekkert smá heppin. :)

Kv. Arna Bergrún

31. desember

Gleðileg jól kæru vinir!

Kv. Úa

4. desember

Við á heimilinu erum nú komin í svolítið jólaskap, en Úan okkar er nú ekki jafn sátt við allar jólahefðirnar. Hún var mjög sátt þegar að Snæfinnur (pakkadagatal) gaf henni svínseyra, og hún var alveg til í að hjálpa til með aðventukransinn. En þegar að við tókum fram lítið grænt jólatré sem spilar jólalög þá opnaðist fyrir geltið í henni og alltaf þegar að hún sér það þá verður hún að gelta svolítið á það.

Úa er mjög dugleg að hjálpa mömmu að baka og eru nú þegar nokkrar smákökutegundir komnar. Svo erum við systkinin í prófum og er Úa alltaf til í að kúra með okkur yfir námsbókunum.

En Úa er ekki bara að afreka í jólaundirbúningnum þessa dagana heldur er hún líka á fullu í íþróttunum. Í gær vorum við öll þrjú systkinin (Elmar, Arna og Úa) niðri í stofu og hentaði það ekki alveg litla skottinu okkar. Hún Úa okkar er nú fremur smár hundur er okkur sagt, en hún var samt ekkert að kippa sér upp við það að það væri 55 cm há grind til að afmarka hvar hún mætti vera svo hún flaug bara yfir! Frekar erfitt er nú að ímynda sér hvernig hún fór að því, en hún er greinilega efnilegur hástökkvari!

Kv. Arna Bergrún

24. nóvember

Jæja, nú hef ég aldeilis ekki verið að standa mig í blogginu, en ég ætla að reyna að bæta eitthvað úr því.

Úan okkar er nú búin á fyrsta lóðaríinu sínu, og gekk allt bara vel (þegar hún var heima). Okkur sem finnst svo stutt síðan að hún var bara pínulítill hvolpur. Vá hvað hún stækkar hratt. Hún var nú samt farin að sakna þess að mega ekki leika við París vin sinn.

Nú í nóvember skellti fjölskyldan sér í brúðkaup í Búlgaríu. Ekkert smá gaman þar og örugglega ekkert síðra hjá Úu, því hún var í pössun hjá Maríu ræktanda á meðan. Heil hundahjörð að leika við.

Það versta var að dúllan okkar var á leiðinlegasta tíma lóðarísins hjá Maríu (rakkarnir hennar vildu nú eitthvað vingast við Úuna okkar). En það voru samt mikil fagnaðarlæti í Úu þegar að hún sá okkur aftur. Og reynar voru fagnaðarlætin í okkur ekkert minni. Og svo sást greinilega þegar að hún var komin heim að hún vissi að þetta væri sitt svæði. Hún hálfpartinn grét af ánægju, litla skottið.

Úa er bara algjört yndi, hlýðir mjög vel og er orðin fremur rólegri en hún var. Kannski er það bara vegna þess að hún er að fullorðnast. Hún er líka loksins búin að missa seinustu hvolpatönnina. Hún náði að vera á undan stóru systur (sem er 17!).

Úa biður að heilsa öllum hundavinum sínum sem skoða síðuna hennar!

Kv. Arna Bergrún

31. október

Síðastliðið sumar fórum við með Úu til dýralæknis í sprautur og þá var okkur sagt að koma aftur með hana í haust, við tókum ekki eftir til hvers við ættum að koma enda upptekin af hvolpinum ( við vorum samt 3 með hana og engin tók eftir), en þar sem við viljum gera allt rétt þá drifum við okkur með hana á mánudaginn og ég held helst að dýralæknirinn hafi verið hálf hissa á komu okkar en Úa fékk nú samt ormahreinsilyf og mikið hrós, svo mikið að við tókum fyrir eyrun á henni svo hún ofmetnaðist nú ekki. Hún á eftir að missa eina mjólkurtönn og líklegast þarf að taka hana en við segjum að þetta með að missa ekki allar tennurnar sé í genunum Arna, (17 ára með 5 daga gamalt bílpróf) er ekki enn búin að missa eina barnatönnina og það sem okkur finnst merkilegast af öllu að þetta er sama tönnin hjá systrunum sem ekki er farin!!!!

Annars er allt gott að frétta af Úunni okkar hún er þessa dagana að breytast úr hvolpi í ungling en mér sýnist það ætla að ganga jafn-átaklaust fyrir sig og hjá hinum unglingunum á heimilinu, ég reikna með að það sé ekki vinsælt að mæta með hana í gönguna á sunnudaginn eða hvað? Gott væri ef einhver fræddi okkur um það.
Kveðjur, AB.

17. október

Myndavél heimilisins er eitthvað í ólagi og því höfum við ekki sett inn myndir lengi það er verið að safna fyrir nýrri. Af Úu er allt gott að frétta hún er hvers manns hugljúfi er farin að heilsa en með vinstri ég veit ekki hvort hún er örvhent eða hvort þetta eru yfirlýsingar um stjórnmálaskoðun hennar en það kemur væntanlega í ljós í næstu kosningum.

Við höfum margoft sagt að hún sé ekkert venjulegur hundur eða hafa margir heyrt um það að hundar fari í felur um leið og þeir sjá tauminn? Úa gerir það! Ég fór á saumahelgi um síðustu helgi og þegar ég kom heim elti Úa mig um húsið í marga klukkutíma, hún ætlaði sko að sjá til þess að ég færi ekkert á svona flakk aftur ég gæti bara saumað heima hjá mér og hana nú!

Fjölskyldan er að fara bráðlega til Búlgaríu í brúðkaup og við fengum heimsins bestu pössun fyrir Úu, við höfum smá áhyggjur af því að hún vilji ekki koma heim aftur.

Úa er 6 mánaða í dag til hamingju með það Úa hrúga!

Fyrir Úu hönd, AB.

23. september

17. október 2007 15:54

Það er merkilegt hvað hundurinn okkar er öðruvísi, það stendur í öllum bókum að hundar pissi ekki í bælið sitt, Úa á tvö bæli og er búin að pissa í þau bæði og oftar en einu sinni í annað, við höfðum miklar áhyggjur af þessu og töluðum um þetta við aðra hundaeigendur en fáir könnuðust við þetta svo við héldum jafnvel að eitthvað væri að henni en núna er skvísan okkar hætt þessu og sefur vel í bælunum sínum

Í hundaskólanum stendur hún sig vel nema í skipuninni ”leggstu” hún leggst bara alls ekki en um leið og við erum komin heim leggst hún eins og engill og bíður eftir lausnarorðinu ætli hún falli ekki bara á þessu.

Úa er aðeins farin að gelta á allt sem hreyfist úti, við vitum ekki hvað við eigum að gera í því kannski einhver geti sagt okkur það enn sem komið er tökum við hana bara inn en Úa er mikill útihundur og aðstæður hjá okkur fínar til að stunda útiveruna.

Af þessum pistli mætti draga þá ályktun að allt sé í skralli hjá okkur en svo er sko alls ekki þetta eru einu vandamálin okkar allt hitt er í svo fínum málum að það er komin dagsetning á fjórða hundinn

Að vera ein heima gengur vel, við erum fjögur heima í fjölskyldunni (tveir eru fluttir) Úa þarf aldrei að vera lengi ein það er alltaf einhver sem getur farið heim svona eftir 2 -3 tíma nema á föstudögum en við höfum þá tvennt til hjálpar það er frænka og frændi í Garðabæ og svo er París búinn að bjóðast til að bjarga einum og einum föstudegi en hingað til höfum við ekki þurft á þessu að halda því skólabörnin hafa fengið óvænt frí vegna veikinda kennara eða breytinga í stundatöflu og næsta föstudag verðum við ekki í vandræðum svo er Háskóla Íslands fyrir að þakka.

Fyrir hönd eða loppu Úu, Anna Björg

15. ágúst

Hæhæ, nú er ég víst búin að vera ansi löt að skrifa. Enda er búið að vera alveg fullt að gerast, sérstaklega hjá Úu.

Um daginn þegar hún var úti í garði kom gestur til hennar. Það var hann Sjeikspírs-París. Það sem þau gátu leikið sér saman, það var alveg frábært að horfa á þau. Þau veltust um og slógust og Úa var sko hvergi hrædd, þó að París sé orðinn tveggja ára, stór strákur. Hún Úa okkar var svo djörf að bíta bara í fínu eyrun hans París. Algjör frekja , sver sig í fjölskylduna.

Þannig að núna er það orðinn hluti af göngutúrnum hennar Úu að kíkja aðeins hvort að París sé úti í sínum garði.

Svo er Úa búin að fara með fjölskyldunni á handverksmarkað í Minni Borg. Þar var Þóra frænka og fjölskylda með bás. Úa varð nú aðeins að kíkja. Og þar varð ég að kaupa á hana svo sæta regnkápu sem ég sá, með endurskinsmerkjum, vasa og öllu. Eina vesenið er að ég má ekki setja Úu í kápuna nema að ég sé ein með hana og enginn annar í fjölskyldunni sjái til. Svo borðuðum við á Laugarási og kíktum líka til ömmu. Frábær ferð, fyrir utan að Úu hefur liðið eitthvað illa og ældi í búrið sitt. En hún hefur nú ekki áður orðið bílveik, en hefur ferðast mikið svo líklegra er að þetta hafi verið eitthvað annað. En Úa var samt mjög hress.

Svo fór fjölskyldan í hvolpaskólann á mánudaginn. Úa fékk nú ekki að koma með þangað, en hún fer í næstu viku. En æfingarnar eru nú samt hafnar. Ég með pulsu á milli varanna læt hana horfa í augun á mér og standa fínt og á réttum stað. Ótrúlega gaman. Skólinni verður í níu vikur.

Talandi um skóla, þá eru mamma og pabbi nú byrjuð og Úa var algjör hetja í dag að vera ein heima. Pabbi kom þó í hádeginu heim að heilsa upp á prinsessuna. Svo þegar ég er komin með mína stundatöflu verður fundur á heimilinu um hver á að koma heim í hvaða eyðu til að Úan okkar verði nú aldrei lengi ein.

Jæja, ætli ég láti þetta ekki vera nóg af fréttum frá okkur í dag, en Úa biður að heilsa öllum hundavinunum sem skoða síðuna hennar.

18. júlí

Það gengur bara vel hjá okkur að læra að vera hundaeigendur. Úa er hinn besti kennari, hún leyfir okkur að þvo sér um augun á hverjum morgni og bursta tennurnar með þessum fína tannbursta og tannkremi með kjúklingabragði mmm.... við erum líka byrjuð að æfa okkur að klippa neglurnar það gekk nú kannski ekki alveg nógu vel en samt betur en við þorðum að vona. Það má endalaust greiða henni og svo kyssir hún Örnu við hin erum ekki spennt fyrir blautum hvolpakossum. Oftast kemur hún þegar kallað er á hana hún sest þegar henni er sagt að gera það og svo sækir hún dótið sitt fyrir borgun.

Cavalier-eigendur eru með sérstakar göngur fyrir hundana sína og við vorum búin að æfa Úu í göngu, sem gekk bara furðuvel, og til að vera viss um alla hluti hringdum við í konu úr göngustjórnendahópnum til að fá nánari upplýsingar um gönguferðina sem er í dag en sú kona sagði að við hefðum ekkert í þessa göngu að gera svo við sitjum bara heima núna með öfugt bros þessar göngur eru líklega fyrir fullorðna hunda en ekki svona hvolpakríli

Nú er uppáhaldsstelpan að fara í vikuferð til Finnlands, mikið held ég að Úa eigi eftir að sakna hennar við gömlu verðum bara að vera duglegri að hoppa og skoppa svo kemur nú Elmar heim klukkan 6 á daginn og hann nennir líka alveg að hoppa og skoppa.

Fyrir hönd fjöls. Anna Björg.

12. júlí

Jæja, nú er liðið full langt síðan við blogguðum seinast. Úan okkar orðin rúmlega 12 vikna og hún er sko búin að afreka margt.

Úa er búin að fara með okkur upp í Kvistó og gisti meira að segja eina nótt. Hún var svaka dugleg svaf vel og svo var henni alveg sama þótt hún mætti ekki hoppa frjáls þar eins og í garðinum heima, var bara í grindinni sinni. Og svo er hún algjört yndi í bíl, sefur bara og er ekkert bílveik.

Við stelpurnar þrjár á heimilinu fórum líka í dagsferð upp í Kvistó á mánudaginn, komum við á Akranesi og í Borgarnesi (nokkrar myndir í albúmi).

Svo í gær var Úa algjör hetja. Hún fór í skoðun hjá dýralækni og fór í sprautu. Hún stóð sig ekkert smá vel . Allt var í lagi hjá henni og hún lofar mjög góðu.

Núna eru líka hafnar daglegar æfingar hjá henni og henni gengur bara furðuvel. Úa kemur þegar kallað er á hana (oftast, nema eitthvað annað rosa spennandi sé að gerast ) og svo sest hún yfirleitt þegar henni er sagt og svo er núna byrjað að kenna henni að sækja og hlýðir hún því oft. Sem sagt mjög hæfileikaríkur hundur hér á ferð.

Jæja, þetta er komið gott að sinni, kv. Arna Bergrún.

28. júní

Úa er nú búin að vera hjá okkur síðan á mánudag, það hefur allt gengið mjög vel hún bræðir alla sem koma inn á heimilið. Við höldum að við séum með snilling í höndunum hún sefur eins og engill og vaknar ekki fyrr en við vöknum og gerir allt sem gera þarf úti í grasi það hefur bara orðið eitt slys og hún valdi rétt gólf til þess, sem sagt snillingur!!!! Þar sem hún sýnir svona mikla námsgetu og stríðir greinilega ekki við mótþróaþrjóskuröskun erum við búin að kenna henni nafnið sitt og það er alveg öruggt að hún þekkir það hún kemur líka alltaf þegar kallað er á hana og hún er að læra að setjast hún hlýðir því svona 90%. Garðar er svo að kenna henni pallasmíði þannig að ef einhver er í vandræðum hafið þá samband við pallagerðakonuna Úu. Hún er búin að fá kveðju frá systur sinni, Uglu, og hefur sýnt mikinn áhuga á að hitta hana sem fyrst. Að lokum smá gort ( hitt var ekki gort bara staðreyndir) hún er farin að fara út í beisli vill reyndar fara sínar eigin leiðir ennþá en matmóðirin er nú ekki naut fyrir ekki neitt og stjórnar eins og hún getur það er svona beggja blands hvernig það gengur. Og eitt enn, get greinilega ekki hætt, getur verið að Úa sé lamb hún er á beit allan daginn!

Fyrir hönd Úu, hún lærir ekki á tölvuna fyrr en eftir sumarfrí, Anna Björg.




Úa er komin !!!!!!!!!!!!

24. júní

Jæja, á morgun er stóri dagurinn. María ætlar að koma með Úu til okkar, og núna verður það til frambúðar. Loksins er komið að því. Við Elmar fáum litla "systur" svona eiginlega í afmælisgjöf (Elmar er vanur!).

Úan okkar kom til okkar á föstudagskvöldið og var yfir nóttina. Allt gekk vel, svo framarlega sem hún hafði höndina á mömmu hjá sér. Ef mamma leyfði sér það að snúa sér, fékk hún krafs í bakið. En það er náttúrulega bara eðlilegt, Úa er vön að sofa í klessu með öllum systkinahópnum. Svo gekk laugardagurinn bara vel, ég leyfi mér samt að halda að hún hafi saknað mín á meðan ég var í vinnunni, miðað við fagnaðarlætin sem ég fékk þegar að ég kom heim. En Úu virðist líða vel hér, er alltaf kát og sefur vel, og er meira að segja byrjuð að borða vel, en við höfðum fyrst svolitlar áhyggjur af því hve lítið hún át. En kannski er hún bara svona matgrönn, eins og hinir í fjölskyldunni (hóst, hóst).

En núna er fjölskyldan að farast úr spenningi, við vonum að allt gangi vel.

Kv. Arna Bergrún.

22. júní

Hæhæ, nú er allt að gerast. Úan okkar var hjá okkur eiginlega allan gærdaginn. Hún var yndisleg. Lék sér bæði inni og úti, og leyfði okkur að knúsa sig í köku og svaf svo vel á eftir. Bara gaman.

Mamma og pabbi eru nú vinnandi allan daginn í að gera allt fínt fyrir Úu. Búið er að girða hluta garðsins fyrir hana, og svo eru þau líka búin að bæta við pallinn á bakvið.

Á eftir förum við svo að sækja dúlluna okkar því hún ætlar að gista hjá okkur í nótt. Það verður gott fyrir okkur og hana að fá aðeins að venjast áður en við fáum hana alveg.

Svo í næstu viku fáum við hana Úu okkar alveg!

17. júní

Úa okkar er nú alveg að verða níu vikna. Hún er búin að fara í fyrstu sprautuna og búin að fara í örmerkingu. Nú fer biðin að styttast.

Í gær kom hún í mjög langa heimsókn hingað, var eiginlega hjá okkur allan daginn. Hún var algjört yndi. Mestan part dagsins svaf hún, en þess á milli lék hún sér bæði úti og inni. Úa var mjög örugg með sig þegar hún kom (svolítið hrædd í bílnum), hún hljóp upp og niður stigann, skoðaði sig um, borðaði svolítið, kúrði hjá okkur og virtist ekkert vera hrædd. Þetta hljóta að vera merki um að henni líði vel hér. Líklegast fer hún að koma til okkar eftir næstu helgi.

Heimilið fer líka að verða klárt fyrir Úuna okkar, mamma og pabbi vinna allan daginn að því að smíða pallinn, girða garðinn og versla hundavörur. Þau eru líka búin að panta tíma í hvolpaskóla.

Fyrir hönd spenntrar fjölskyldu,

Arna Bergrún.

13. júní

Dagurinn í gær var nú heldur betur frábær. Þar sem ekki fannst tími um helgina til að fara í hvolpaheimsókn, ætlaði fjölskyldan að fá að kíkja á dúllurnar seinni partinn í gær. Þar sem enn var eitthvað erfitt að finna tíma bauð María okkur að koma og ná í hvolp, og fá í heimsókn til okkar. Ég og Elmar vorum bæði að vinna, svo mamma og pabbi brunuðu uppí Kópavog og náðu í hvolpinn OKKAR, hana Úu. Já, þá er það komið á hreint, við fáum hana.

Okkur var sagt að líklega myndi hún vera dálítið baka til í byrjun, varla borða og vera hálf feimin. En það var nú ekki raunin. Úa litla labbaði á milli okkar allra sex, smakkaði á öllum tám, lék sér við okkur, fékk sér matarbita, og lagði sig svo í nýju körfunni sinni. Gaman var að því að hún vildi frekar vera í nýrri körfu heldur en sofa á teppinu sem hún átti. Við fengum að vera með hana í um 5 tíma, en svo urðum við að skila henni aftur til mömmu sinnar. Líklegast kemur Úa okkar þó aftur um helgina.

Þetta var sem sé yndisleg heimsókn, og held ég að Úu hafi bara líkað prýðilega við fjölskylduna.

Kv. Arna Bergrún.

3. júní

Hæhæ, við fjölskyldan fórum núna í kvöld í okkar þriðju heimsókn til hvolpanna. Enn er ekki alveg ákveðið hvora dúlluna við fáum en það fer að koma í ljós. Það er alltaf jafn yndislegt að koma að sjá litlu krílin og knúsa þau og horfa á þau leika sér. Ekki er síðra að sjá alla fullorðnu Cavalier-hundana sem María er með, en þeir eru hvorum öðrum blíðari og keppast um að fá sem mest klapp og knús frá okkur. Gaman að vita hvað bíður okkar næstu árin. Við getum varla beðið, tilhlökkunin er svo mikil.

En svona til að slá á mestu spennuna höfum við verið að versla eitt og annað fyrir litlu prinsessuna, en við erum nú þegar komin með bæli (sjá myndaalbúm), leikgrind, matardalla, eitt dót og ól. Svo erum við smám saman að safna.

Fyrir hönd fjölskyldunnar,

Arna Bergrún.

28. maí

Jæja, nú fer biðin að styttast, við fjölskyldan erum búin að fara að skoða dúllurnar tvisvar sinnum. Við erum svo ánægð með að hafa ákveðið að fara í hundana, því stelpurnar litlu hafa gjörsamlega brætt hjörtu okkar allra. Enn vitum við ekki hvort við fáum Uglu eða Úu, en okkur finnst það ekki skipta neinu máli, þær eru jafn yndislegar.

Nú erum við búin að setja inn nokkrar myndir frá heimsóknunum, þær má finna í albúminu.

Hvolpakveðjur,

tilvonandi hvolpaeigendur.