Hæhæ, nú er ég víst búin að vera ansi löt að skrifa. Enda er búið að vera alveg fullt að gerast, sérstaklega hjá Úu.
Um daginn þegar hún var úti í garði kom gestur til hennar. Það var hann Sjeikspírs-París. Það sem þau gátu leikið sér saman, það var alveg frábært að horfa á þau. Þau veltust um og slógust og Úa var sko hvergi hrædd, þó að París sé orðinn tveggja ára, stór strákur. Hún Úa okkar var svo djörf að bíta bara í fínu eyrun hans París. Algjör frekja , sver sig í fjölskylduna.
Þannig að núna er það orðinn hluti af göngutúrnum hennar Úu að kíkja aðeins hvort að París sé úti í sínum garði.
Svo er Úa búin að fara með fjölskyldunni á handverksmarkað í Minni Borg. Þar var Þóra frænka og fjölskylda með bás. Úa varð nú aðeins að kíkja. Og þar varð ég að kaupa á hana svo sæta regnkápu sem ég sá, með endurskinsmerkjum, vasa og öllu. Eina vesenið er að ég má ekki setja Úu í kápuna nema að ég sé ein með hana og enginn annar í fjölskyldunni sjái til. Svo borðuðum við á Laugarási og kíktum líka til ömmu. Frábær ferð, fyrir utan að Úu hefur liðið eitthvað illa og ældi í búrið sitt. En hún hefur nú ekki áður orðið bílveik, en hefur ferðast mikið svo líklegra er að þetta hafi verið eitthvað annað. En Úa var samt mjög hress.
Svo fór fjölskyldan í hvolpaskólann á mánudaginn. Úa fékk nú ekki að koma með þangað, en hún fer í næstu viku. En æfingarnar eru nú samt hafnar. Ég með pulsu á milli varanna læt hana horfa í augun á mér og standa fínt og á réttum stað. Ótrúlega gaman. Skólinni verður í níu vikur.
Talandi um skóla, þá eru mamma og pabbi nú byrjuð og Úa var algjör hetja í dag að vera ein heima. Pabbi kom þó í hádeginu heim að heilsa upp á prinsessuna. Svo þegar ég er komin með mína stundatöflu verður fundur á heimilinu um hver á að koma heim í hvaða eyðu til að Úan okkar verði nú aldrei lengi ein.
Jæja, ætli ég láti þetta ekki vera nóg af fréttum frá okkur í dag, en Úa biður að heilsa öllum hundavinunum sem skoða síðuna hennar.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment