Saturday, February 6, 2010

28. ágúst 2009

Jæja, núna fer vetrarrútínan öll að komast í gang. Öll fjölskyldan byrjuð að vinna eða byrjuð í skólanum. Og ég byrjuð að fá almennilegan morgunsvefn - eða þó ekki, mér finnst alltaf einhver vera heima hjá mér. Það er svona að búa á stóru heimili.


Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðan síðast. Ég er alltaf að fá skemmtilega hunda í heimsókn, París, Natan, Freknu, Bono og svo Tinna litla frænda. Svo er ég búin að fara nokkrum sinnum upp í sumarbústað og svo líka í sveitina til Þóru og Einars. Svo skellti ég mér að sjálfsögðu í nokkrar Cavaliergöngur í sumar. Og ég er auðvitað búin að vera í fullu starfi við að halda röð og reglu á heimilinu og nánasta nágrenni.

Síðan fór ég síðustu helgi á Afmælissýningu HRFÍ. Þar stóð ég mig með prýði og fékk bláan borða og very good báða dagana og flotta dóma með. Svo fór ég í gær aftur upp í reiðhöll á afmælishátíðina og hitti sko heldur betur mikið af flottum hundum.

Knús og kossar á ykkur öll,
Úa

No comments:

Post a Comment