Saturday, February 6, 2010

4. desember

Við á heimilinu erum nú komin í svolítið jólaskap, en Úan okkar er nú ekki jafn sátt við allar jólahefðirnar. Hún var mjög sátt þegar að Snæfinnur (pakkadagatal) gaf henni svínseyra, og hún var alveg til í að hjálpa til með aðventukransinn. En þegar að við tókum fram lítið grænt jólatré sem spilar jólalög þá opnaðist fyrir geltið í henni og alltaf þegar að hún sér það þá verður hún að gelta svolítið á það.

Úa er mjög dugleg að hjálpa mömmu að baka og eru nú þegar nokkrar smákökutegundir komnar. Svo erum við systkinin í prófum og er Úa alltaf til í að kúra með okkur yfir námsbókunum.

En Úa er ekki bara að afreka í jólaundirbúningnum þessa dagana heldur er hún líka á fullu í íþróttunum. Í gær vorum við öll þrjú systkinin (Elmar, Arna og Úa) niðri í stofu og hentaði það ekki alveg litla skottinu okkar. Hún Úa okkar er nú fremur smár hundur er okkur sagt, en hún var samt ekkert að kippa sér upp við það að það væri 55 cm há grind til að afmarka hvar hún mætti vera svo hún flaug bara yfir! Frekar erfitt er nú að ímynda sér hvernig hún fór að því, en hún er greinilega efnilegur hástökkvari!

Kv. Arna Bergrún

No comments:

Post a Comment