Jæja, nú er liðið full langt síðan við blogguðum seinast. Úan okkar orðin rúmlega 12 vikna og hún er sko búin að afreka margt.
Úa er búin að fara með okkur upp í Kvistó og gisti meira að segja eina nótt. Hún var svaka dugleg svaf vel og svo var henni alveg sama þótt hún mætti ekki hoppa frjáls þar eins og í garðinum heima, var bara í grindinni sinni. Og svo er hún algjört yndi í bíl, sefur bara og er ekkert bílveik.
Við stelpurnar þrjár á heimilinu fórum líka í dagsferð upp í Kvistó á mánudaginn, komum við á Akranesi og í Borgarnesi (nokkrar myndir í albúmi).
Svo í gær var Úa algjör hetja. Hún fór í skoðun hjá dýralækni og fór í sprautu. Hún stóð sig ekkert smá vel . Allt var í lagi hjá henni og hún lofar mjög góðu.
Núna eru líka hafnar daglegar æfingar hjá henni og henni gengur bara furðuvel. Úa kemur þegar kallað er á hana (oftast, nema eitthvað annað rosa spennandi sé að gerast ) og svo sest hún yfirleitt þegar henni er sagt og svo er núna byrjað að kenna henni að sækja og hlýðir hún því oft. Sem sagt mjög hæfileikaríkur hundur hér á ferð.
Jæja, þetta er komið gott að sinni, kv. Arna Bergrún.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment