Saturday, February 6, 2010

18. júlí

Það gengur bara vel hjá okkur að læra að vera hundaeigendur. Úa er hinn besti kennari, hún leyfir okkur að þvo sér um augun á hverjum morgni og bursta tennurnar með þessum fína tannbursta og tannkremi með kjúklingabragði mmm.... við erum líka byrjuð að æfa okkur að klippa neglurnar það gekk nú kannski ekki alveg nógu vel en samt betur en við þorðum að vona. Það má endalaust greiða henni og svo kyssir hún Örnu við hin erum ekki spennt fyrir blautum hvolpakossum. Oftast kemur hún þegar kallað er á hana hún sest þegar henni er sagt að gera það og svo sækir hún dótið sitt fyrir borgun.

Cavalier-eigendur eru með sérstakar göngur fyrir hundana sína og við vorum búin að æfa Úu í göngu, sem gekk bara furðuvel, og til að vera viss um alla hluti hringdum við í konu úr göngustjórnendahópnum til að fá nánari upplýsingar um gönguferðina sem er í dag en sú kona sagði að við hefðum ekkert í þessa göngu að gera svo við sitjum bara heima núna með öfugt bros þessar göngur eru líklega fyrir fullorðna hunda en ekki svona hvolpakríli

Nú er uppáhaldsstelpan að fara í vikuferð til Finnlands, mikið held ég að Úa eigi eftir að sakna hennar við gömlu verðum bara að vera duglegri að hoppa og skoppa svo kemur nú Elmar heim klukkan 6 á daginn og hann nennir líka alveg að hoppa og skoppa.

Fyrir hönd fjöls. Anna Björg.

No comments:

Post a Comment