Saturday, February 6, 2010

17. desember 2008

Jæja, nú er ekki nema vika í jólin þó ég haldi nú að flestir heimilismeðlimir vildu nú að það væri pínu lengra í þau. Mamma er búin að standa sig vel í bakstrinum en jólagjafirnar hjá fjölskyldunni eru ekki komnar svo langt á leið.
Svo er það pakkadagatalið Snæfinnur. Allir drógu í nóvember annan fjölskyldumeðlim til þess að kaupa gjafir fyrir og voru þær svo settar í pakkadagatalið. Úan okkar á svo alla sunnudaga og aðfangadag. Þvílíkir hæfileikar sem hundurinn hefur við að opna pakka. Hún bara opnar þá nánast hjálparlaust á nó tæm!
Þó hún geri nú reyndar heiðarlega tilraun til þess að stela pökkunum sem hinir eigi að fá líka.
Já og svo er Úan búin að eignast einka aðdáanda. (veit ekki hvort að Parísinn hennar sé ánægður með það). Hann Polli papillon nágranni okkar var mjög duglegur að koma í heimsókn þegar að Úa var að lóða. Gjarnan þegar að við komum heim beið hann við hliðið og vonaðist til þess að fá að hitta skvísuna. Hann meira að segja labbaði meðfram húsinu okkar og bankaði á gluggann til að vita hvort Úan væri heima. Greinilega sönn ást! En ekki voru þau svo heppin að fá að hittast. ;(
Kv. Arna Bergrún og Úa mús.

No comments:

Post a Comment