Saturday, February 6, 2010

25. júní

Í dag er liðið eitt ár frá því að Ljúflings-María kom með gleðigjafann hana Ljúflings-Úu til okkar. Á þessu ári erum við búin að læra mikið um hunda og erum eiginlega hálfhissa hversu vel allt hefur gengið hjá okkur. Úa er reyndar einstaklega góður hundur, hún er svo kát og blíð, frökk og óhrædd og heldur að öllum hljóti að líka vel við hana, hún heilsar öllum, reynir að fá fólk og hunda til að leika við sig. Hundaheimurinn er líka alveg nýr heimur fyrir okkur það hefur komið okkur mikið á óvart hversu mörgum hundum og hundaeigendum við höfum kynnst á þessu eina ári, svo eru allir svo tilbúnir að gefa okkur góð ráð eða bara spjalla. Besti vinur Úu er París, hann hefur hjálpað til við uppeldið og Guðrún Lilja mamma hans hefur einnig gefið okkur fullt af góðum ráðum.

María, takk fyrir að hafa treyst okkur fyrir Úu!

En að allt öðru, við fjölskyldan erum búin að vera í löngu fríi í útlöndum, áður en við fengum okkur hund vorum við búin að ganga frá því að við hefðum örugga pössun fyrir Úu og þar var hún þennan tíma, það er greinilegt að henni leið vel hjá Þóru og Einari, hún fagnaði okkur reyndar mikið þegar við komum til að sækja hana en varð svo hálfhrædd þegar hún sá að við vorum að taka hana en hún var nú samt fljót að jafna sig. Arna kom ekki með að sækja Úu en þegar þær systur hittust voru þvílíkir fagnaðarfundir að virkja hefði mátt táraflóðið! Úa fékk að fara nokkrum sinnum í sveitina með þeim Þóru og Einari og þar lærði hún að leika sér úti í bandi, hún fann hreiður með ungum í, henni fannst sjálfsagt að sleikja þá aðeins og svo voru frændur hennar þeir Atli og Daníel duglegir að leika við hana. Þóra og Einar, takk kærlega fyrir pössunina og Þóra við munum herma þetta upp á þig að vera ljósmóðir ef og þegar við förum í hvolpastúss!

No comments:

Post a Comment