Saturday, February 6, 2010

Ný síða!!!

Jæja, þá erum við komin með nýja síðu.
Ég er búin að setja inn allar gömlu færslurnar frá hinni síðunni, en tókst því miður ekki að setja inn myndirnar sem tilheyrðu þeim.
Mbk,
Arna Bergrún og Ljúflings Úa.

17. janúar 2010

Ég, mamma og Elmar fórum núna í kvöld í fyrstu heimsóknina til Bliku okkar. En hún fæddist þann 31. desemer 2009 (á afmælisdaginn hans pabba), hjá henni Maríu (Ljúflingsræktun).

Það er því beðið á þessum bæ með eftirvæntingu eftir að marsmánuður komi, því að þá verður gullmolinn orðinn 10 vikna ;o)


Knús á alla frá Úu verðandi stóru sys!

-Arna Bergrún-

28. ágúst 2009

Jæja, núna fer vetrarrútínan öll að komast í gang. Öll fjölskyldan byrjuð að vinna eða byrjuð í skólanum. Og ég byrjuð að fá almennilegan morgunsvefn - eða þó ekki, mér finnst alltaf einhver vera heima hjá mér. Það er svona að búa á stóru heimili.


Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðan síðast. Ég er alltaf að fá skemmtilega hunda í heimsókn, París, Natan, Freknu, Bono og svo Tinna litla frænda. Svo er ég búin að fara nokkrum sinnum upp í sumarbústað og svo líka í sveitina til Þóru og Einars. Svo skellti ég mér að sjálfsögðu í nokkrar Cavaliergöngur í sumar. Og ég er auðvitað búin að vera í fullu starfi við að halda röð og reglu á heimilinu og nánasta nágrenni.

Síðan fór ég síðustu helgi á Afmælissýningu HRFÍ. Þar stóð ég mig með prýði og fékk bláan borða og very good báða dagana og flotta dóma með. Svo fór ég í gær aftur upp í reiðhöll á afmælishátíðina og hitti sko heldur betur mikið af flottum hundum.

Knús og kossar á ykkur öll,
Úa

12. júní 2009

Ekki góðar fréttir...


Við fengum því miður ekki góðar fréttir í dag, en Úan okkar er víst ekki með hvolpa.

En við reynum að líta á björtu hliðarnar og vona að það gangi bara betur næst.Við hlökkum bara til að sýna hana í ágúst en það er stefnan.

7. apríl 2009

Páskafrí!!!

Jæja, alltaf sama letin í henni systur minni að blogga
En af mér er bara allt það besta að frétta. Fór á marssýninguna og fékk bláan borða og frábæra dóma
Svo er ég alltaf að fá frábæra gesti, Natan sæti labrador hefur komið og svo auðvitað Parísinn minn og svo kemur Frekna frænka alltaf reglulega, þannig að það er nóg að gera hjá mér við að sinna gestunum.
Svo er núna fjölskyldan öll að fara að komast í páskafrí og ég nýt þess í botn! Ég hef margt fyrir stafni en passa mig þó að þiggja nú nægt dekur og kúr inn á milli.

6.febrúar 2009

Góðar fréttir!

Af mér er bara allt það besta að frétta. Í sumar fór ég í augnskoðun sem kom vel út (fyrir utan smá víkjandi galla) og svo fór ég til læknisins áðan í hjartaskoðun og fékk svona ljómandi góðar niðurstöður (Örnu sys létti þvílíkt!), þannig að núna er fjölskyldan farin að leyfa sér alvarlega að hugsa um hvort að við eigum að para skvísuna í vor ;) Það er mjög svo mikill áhugi fyrir því á heimilinu, sumir eru búnir að plana hin ýmsustu smáatriði varðandi það þó svo að endanleg ákvörðun hafi nú ekki verið tekin ;)

En svo er nú heldur betur farið að styttast í sýningu ;) Úan okkar er skráð í unghundaflokk og við systurnar reynum eftir bestu getu að þjálfa hvora aðra. Og svo rétt í þessu var pabbi að setja saman lítið saumaborð fyrir mömmu, en við systurnar erum að hugsa um að stela því af henni, það er svo fullkomið til æfinga ;) (hægt að sjá mynd hér fyrir neðan)

Svo er Úa mjög upptekin í uppeldi þessa dagana. Í hvert skipti sem Frekna eða Kara koma í heimsókn er sko passað upp á að þær hvorki, labbi, skríði, gelti, urri né andi án þess að leggjast af og til fyrir ofurhetjunni Úu, sem veit að hún er prinsessan á heimilinu og lætur aðra vita af því ;)

23. janúar 2009

Hæhæ kæru vinir...


...það er búið að vera alveg nóg að gera hjá mér! Ég er bæði búin að fara uppí Kaldárssel með Natani sæta, labradorhvolpaskotti og svo er ég búin að fara upp í Heiðmörk með Köru frænku (gordon setter) og Stormi (ungversk vizsla) en Arna sys er ekki nógu dugleg að muna að hafa myndavélina með í för. smiley Svo er ég líka búin að fá að hitta Freknu frænku og bara hafa það kósý með fjölskyldunni minni.

Svo á að sýna mig á HRFÍ-sýningunni í unghundaflokki, við systurnar hlökkum mikið til og svo ætlar Gerður mák að sýna Köru frænku þannig að það verður svaka stuð....

Svo er ég bara búin að vera að brillera í að láta alla á heimilinu dekra við mig að vanda, ekki amalegt að eiga stóra fjölskyldu til að láta þjóna sér!

Knús á alla,
Úa mús