Saturday, February 6, 2010

30. október 2008

Það er svo mikið að gera hjá Örnu að hún hefur ekki gefið sér tíma til að skrifa á síðuna og því ætla ég að setja hér niður nokkur orð. Úa tók þátt í sýningunni í haust og fékk fína dóma um byggingarlag, feld og lunderni en blessunin setti upp kryppu þegar dómarinn var að meta hana og það geðjaðist dómaranum ekki. Ég verð að gagnrýna Það að Arna var fyrst í röðinni og fékk ekki að stilla Úu upp áður en hún var skoðuð en allir sem á eftir komu höfðu nægan tíma til þess. Deginum fyrir sýninguna hafði Úa komist í tópaspakka og var með smá niðurgang um morguninn og tveimur klukkutímum fyrir sýninguna fékk Arna þá frétt að amma hennar hefði látist um morguninn, ekkert smáálag á systurnar.
Jæja nóg um þetta. Það er alltaf jafngaman að kenna Úu nýjar listir hún er mjög fljót að læra og við höldum að hún skilji of mikið í mannamáli og verðum því stundum að nota dulmál t.d. segist enginn lengur vera að fara út að labba eða ganga nema ætlunin sé að hafa hundinn með því hún hleypur fram og leggst niður til að láta setja sig í taum. En oftast kemur það sér vel hvað hún skilur mikið hún fer strax í grindina sína þegar hún er beðin um að passa húsið og hoppar út í bíl ef henni er sagt að gera það.
Okkur langar til að prófa að hafa hvolpa og erum byrjuð að undirbúa okkur, Arna er duglegust að lesa sér til og er búin að safna í upplýsingamöppu öllu sem hún finnur um hvolpa. Við erum búin að fara með Úu í augnskoðun, þar kom í ljós að hún er með víkjandi augnsjúkdóm sem gerir henni ekkert, við verðum bara að passa að rakkinn sem hún parast með sé ekki með þennan sjúkdóm. Næst er að fá hjartavottorð það gerum við í febrúar eða mars og svo er að finna rakka. Okkur langar svolítið í þrílitann rakka.
Þetta er fyrir löngu orðið allt of langt en ég verð samt að segja frá Freknu frænku sem kom í fyrsta skipti í heimsókn í gær, Frekna er border collie og heitir Frekna af augljósri ástæðu.
Stopp í bili.

No comments:

Post a Comment