Saturday, February 6, 2010

23. september

17. október 2007 15:54

Það er merkilegt hvað hundurinn okkar er öðruvísi, það stendur í öllum bókum að hundar pissi ekki í bælið sitt, Úa á tvö bæli og er búin að pissa í þau bæði og oftar en einu sinni í annað, við höfðum miklar áhyggjur af þessu og töluðum um þetta við aðra hundaeigendur en fáir könnuðust við þetta svo við héldum jafnvel að eitthvað væri að henni en núna er skvísan okkar hætt þessu og sefur vel í bælunum sínum

Í hundaskólanum stendur hún sig vel nema í skipuninni ”leggstu” hún leggst bara alls ekki en um leið og við erum komin heim leggst hún eins og engill og bíður eftir lausnarorðinu ætli hún falli ekki bara á þessu.

Úa er aðeins farin að gelta á allt sem hreyfist úti, við vitum ekki hvað við eigum að gera í því kannski einhver geti sagt okkur það enn sem komið er tökum við hana bara inn en Úa er mikill útihundur og aðstæður hjá okkur fínar til að stunda útiveruna.

Af þessum pistli mætti draga þá ályktun að allt sé í skralli hjá okkur en svo er sko alls ekki þetta eru einu vandamálin okkar allt hitt er í svo fínum málum að það er komin dagsetning á fjórða hundinn

Að vera ein heima gengur vel, við erum fjögur heima í fjölskyldunni (tveir eru fluttir) Úa þarf aldrei að vera lengi ein það er alltaf einhver sem getur farið heim svona eftir 2 -3 tíma nema á föstudögum en við höfum þá tvennt til hjálpar það er frænka og frændi í Garðabæ og svo er París búinn að bjóðast til að bjarga einum og einum föstudegi en hingað til höfum við ekki þurft á þessu að halda því skólabörnin hafa fengið óvænt frí vegna veikinda kennara eða breytinga í stundatöflu og næsta föstudag verðum við ekki í vandræðum svo er Háskóla Íslands fyrir að þakka.

Fyrir hönd eða loppu Úu, Anna Björg

No comments:

Post a Comment