Dagurinn í gær var nú heldur betur frábær. Þar sem ekki fannst tími um helgina til að fara í hvolpaheimsókn, ætlaði fjölskyldan að fá að kíkja á dúllurnar seinni partinn í gær. Þar sem enn var eitthvað erfitt að finna tíma bauð María okkur að koma og ná í hvolp, og fá í heimsókn til okkar. Ég og Elmar vorum bæði að vinna, svo mamma og pabbi brunuðu uppí Kópavog og náðu í hvolpinn OKKAR, hana Úu. Já, þá er það komið á hreint, við fáum hana.
Okkur var sagt að líklega myndi hún vera dálítið baka til í byrjun, varla borða og vera hálf feimin. En það var nú ekki raunin. Úa litla labbaði á milli okkar allra sex, smakkaði á öllum tám, lék sér við okkur, fékk sér matarbita, og lagði sig svo í nýju körfunni sinni. Gaman var að því að hún vildi frekar vera í nýrri körfu heldur en sofa á teppinu sem hún átti. Við fengum að vera með hana í um 5 tíma, en svo urðum við að skila henni aftur til mömmu sinnar. Líklegast kemur Úa okkar þó aftur um helgina.
Þetta var sem sé yndisleg heimsókn, og held ég að Úu hafi bara líkað prýðilega við fjölskylduna.
Kv. Arna Bergrún.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment