Úa okkar er nú alveg að verða níu vikna. Hún er búin að fara í fyrstu sprautuna og búin að fara í örmerkingu. Nú fer biðin að styttast.
Í gær kom hún í mjög langa heimsókn hingað, var eiginlega hjá okkur allan daginn. Hún var algjört yndi. Mestan part dagsins svaf hún, en þess á milli lék hún sér bæði úti og inni. Úa var mjög örugg með sig þegar hún kom (svolítið hrædd í bílnum), hún hljóp upp og niður stigann, skoðaði sig um, borðaði svolítið, kúrði hjá okkur og virtist ekkert vera hrædd. Þetta hljóta að vera merki um að henni líði vel hér. Líklegast fer hún að koma til okkar eftir næstu helgi.
Heimilið fer líka að verða klárt fyrir Úuna okkar, mamma og pabbi vinna allan daginn að því að smíða pallinn, girða garðinn og versla hundavörur. Þau eru líka búin að panta tíma í hvolpaskóla.
Fyrir hönd spenntrar fjölskyldu,
Arna Bergrún.
Saturday, February 6, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment